|
02.01.2007 20:26:28 / rottugaur
Nýtt ár gengið í garð og byrjaði það með þessu venjulega á nýársdag
þ.e. þynnka dauðans. Merkilegt hvað þetta er algengt á nýársdag.
Skaupið var gott, mikið sprengt og singstar eftir það. Ekki má
gleyma því að þegar að þarna var komið þótti mér það góð hugmynd að
fara á sálarball úff. Maður þarf að hætta að vera svo óskipulagður
og koma sér upp einhverju plani fyrir svona kvöld til að maður jú
endi ekki á Broadway í tómu rugli. Ekki það að það hafi ekki verið
skemmtilegt.. held ég...
Eitthvað held ég að ég hafi farið í það á tímapunkti á ballinu að
reyna að senda einhverjar nýárskveðjur á sms formi veit ekki
hverjum ég sendi eða ekki og ekkert veit ég hvað stóð í þessum
sms-um en það átti eflaust að vera gleðilegt nýtt ár og takk fyrir
það gamla. Eitthvað gafst ég upp á þessu sökum "þreytu" og færri
fengu skeyti en áttu að fá. En ég vil líka taka það fram að menn
sem blása bara í míkrafóninn í singstar í stað þess að syngja eru
svindlarar.
»
29.12.2006 18:13:25 / rottugaur
Ætli ég sé sá eini sem finnst hann vera mættur í Kazad-dum hellinn
og að trommurnar séu byrjaðar og brjálaðir orkar séu eflaust farnir
að elta mig? Allavega heyrist með ágætlega jöfnu millibili hér í
breiðholtinu svona sprengjuhljóð sem minnir mig óneitanlega mikið á
þetta atriði úr LOTR. Allavega er ekki partýið að fara að byrja? Er
að hugsa um að kveðja árið með stæl!! Gleðilegt nýtt ár lesendur.
Ný færsla verður ekki fyrr en á nýju ári.
»
22.12.2006 02:37:14 / rottugaur
Jæja jólagjafir og skemmtilegheit hafa endað á tónleikum hjá mér
þessi jól. Fyrst var það Xmas þar sem hin ýmsu bönd tróðu upp.
Alltaf er maður spenntur að heyra jólalögin hjá böndunum þar sem
maður er orðinn svo hundleiður á last christmas og svo framvegis.
Gömlu tuggurnar eru orðnar það og þess vegna er alltaf hressandi að
heyra aðra hressari útgáfu af þeim. Jólalög ársins í ár eiga Dikta,
Sprengjuhöllin og Reykjavík sem tóku hressa útgáfu af
uppáhaldsjólalaginu mínu Jólasnjór eftir Terrordisco Plúseinn. En í
kvöld var Gaukurinn sá mæti staður kvaddur með eftirsjá, ótrúlegt
að langlífasti skemmtistaðurinn í bænum sé að loka. En Shadow
Parade og Dikta sáu um tónlistina og gerðu það með prýði. Ekkert
þarf ég að fjölyrða um það hvað mér finnst Dikta rosalega góð
hljómsveit. Jólakveðjur til Einars frænda þess eina sem hefur haft
fyrir því að senda mér kveðju. Þið hin hafið enn sjens því ég óska
öllum nær sem fær gleðilegra jóla!!
»
19.12.2006 01:53:12 / rottugaur
Til hamingju með þau og eigið þau gleðileg og einnig megið þið eiga
farsællt komandi ár!! Þið sem lesið þetta og þið hin sem lesið
þetta ekki þá er þetta jólakortið mitt í ár ég elska ykkur öll og
hafið þið það gott yfir jólin!!
»
27.11.2006 20:39:05 / rottugaur
Nú ætla ég, nú skal ég, nú gerist þetta ég ætla samt í sturtu fyrst
og skila spólu síðan mun þetta hafast. Ég ætla að byrja að halda
áfram að hugsa um að taka þennan helvítis skáp niður og koma honum
í burt. Jólatiltekt þetta er allt að krauma, það er jafnvel að ég
bæti við einu jólaskrauti þar sem skrautið sem fór upp síðustu jól
fór aldrei niður og er því orðið hluti af
innanhúsarkitektspælingunum mínum varðandi herbergið mitt jú jú
einmitt. Og ég er með spegil þar inni til að láta það líta út fyrir
að vera stærra crap. Mig vantar eitthvað annað gera en að pæla í
þessu því ég hef eiginlega ekki áhuga á að bæta úr þessu þó ég sé
eiginlega búinn að ákveða að gera það. Það liggur við að mér detti
það til hugar að fara út að hlaupa á svellinu til að koma mér frá
því að gera eitthvað í þessu. Ef engin betri boð berast verð ég að
hugsa um að pæla í því að byrja að fara að færa skrúfjárnin niður í
holuna mína til að þau verði allavega tilbúin þegar ég verð
tilbúinn.
»
10.11.2006 02:07:29 / rottugaur
Já ég þjáist af henni bloggleti líka stundum. En það er reyndar
þannig með mig að það þarf ekkert mikið til að ég læknist bara
minnast á það og þá er ég yfirleitt til. Ég þoli ekki að sitja og
gera ekki neitt. Ég fyrirlít sjónvarpsgláp nema þegar það er
fótbolti. En er ég fullkominn og fylgi þessari fyrirlitningu eftir
og horfi ekki á sjónvarp? Neips þessi litli kassi og í sumum
tilfellum stóri kassi hefur einhver sefandi áhrif hann lokkar mann
að skjánum með flottum litum og hljóðum og áður en maður veit af
búmm klukkutími farinn og ef maður passar sig ekki fleiri. Ég þoli
ekki svoleiðis. En leti jú ég þjáist af henni ég er meistari í að
fresta hlutum sem þarf að gera. Gott dæmi er klósettið heima hjá
mér ég man ekki hvenær mútta bað mig um að mála loftið það er enn í
vinnslu. Síðan fékk ég einhverja flugu í hausinn að reyna að fara
koma mér betur fyrir í kjallaraholunni minni þetta þýðir að taka
fataskáp í sundur og tæma hann og taka til. Ég er kominn heim með
kassa punktur. Ég er að verða geðveikur á þessari leti mér leiðist
hún út af hverju þarf ég að þjást af henni!!
»
31.10.2006 23:33:15 / rottugaur
Ég þoli ekki ég endurtek ég þoli ekki almennan slappleika sem vill
oft fylgja einhverjum smá kvefpestum!!! Ég segi bara þvert nei og
vil ekki þennan viðbjóð.
»
27.10.2006 01:01:14 / rottugaur
Hata að tína heilu ritgerðunum sem maður skrifar fyrir þetta blogg!
Legg ekki í önnur skrif í bráð. Meginmálið var airwaves á föstudag
og laugardag var misskemmtilegt en heillt yfir frábær kvöld og ekki
get ég beðið eftir næstu hátíð!!!
»
20.10.2006 02:14:08 / rottugaur
Nú var kvöldið tekið snemma og farið á mates of state í
Hafnarhúsinu þ.e. Reykjavík Art Museum sem var bara eins og ég átti
von á alger snilld. Eftir það fór ég á Gaukinn til að sjá nafna í
Foghorns og Skakkamanage. Foghorns voru prýðilegir spiluðu smá
country, rockabilly, folk og fóru síðan yfir í allir á svið og
spila á eitthvað hljóðfæri í lokin sem var skemmtilegt.
Skakkamanage voru síðan nokkuð ágæt líka ekkert til að hrópa húrra
fyrir en stóðu alveg fyrir sínu. Eftir þetta kom smá bil hjá mér
persónulega því ég þurfti að skila bílnum mínum af mér sem brósi
samviskulega tók af mér. Og hefur þessi kvöld verið mér livesafer
þ.e. skutlað mér til og frá. Ég sá síðan smá af Þóri sem var alveg
gott því ég hafði aldrei séð hann spila með hljómsveit með sér.
Síðan var haldið á Klaxons sem að mínu mati voru algjörlega
brillijant. Dansandi rokksveifla. Síðan sá ég smá af Mugi og fór
síðan á Nasa og sá lokin af metric sem ég sé núna eftir að hafa
ekki séð allt því þau voru góð. En það sem kom í kjölfarið var ekki
verra því Love Is All kom og kláraði kvöldið mjög vel. Ég hitti
einhverja skota á Nasa sem voru eitthvað viðriðin hljómsveitina
Call To Mind. En ég var að reyna að selja þeim Coral á Grand Rokk
annað kvöld en þá kom í ljós að þau eru að spila á undan þeim
þannig að þetta var ekki erfið sala. En eftir herlegheitin fór ég á
Hressó að sjá Touch spila og eins og oft áður þá fór nafni á kostum
og meira rokk kemst maður ekki í tæri við. Mig langar að benda á
það að þessi færsla er skrifuð undir áhrifum og allar
stafsetningarvillur eru þar af leiðandi. En enn eitt frábært kvöld
á Airwaves!!!
Hvað á maður að gera á morgun það er allt of margt sem
heillar!!!
»
19.10.2006 02:10:51 / rottugaur
Jæja kvöldið byrjaði reyndar þannig að ég lét undan
fótboltadjöflinum og horfði á liverpool leikinn. Eftir hann var
haldið á Gaukinn þar sem we are scientists áttu að spila og náði ég
inn rétt fyrir þann tíma sem röð byrjaði sem er gott. Reyndar kom
ég undir lok telepathetics og þurfti að hlusta á hávaða(noise) en
eftir þá byrjuðu þeir og voru nokkuð góðir. Ekkert sem kom á óvart
samt því ég var búinn að hlusta talsvert á þá fyrir. En Gaukurinn
var gjörsamlega yfirtroðinn og engann veginn hægt að finna súrefni
þar inni þannig að ég fór á Nasa og sá lokin á fræ og sá þar fyrir
gaurinn sem rappaði mig í klessu á hróaskeldu sem er að ég held í
forgotten lores. En á Nasa hitti ég fyrir hann Orra úr
sigurrós(svona aðeins til að gera sig merkilegri en maður er) en
hann bauð mér staup sem var í rauninni vodki í klökum hrist saman
og átti hann aukastaup. Síðan var leiðinni heitið á Pravda(Og já ég
held að þetta verði í fyrsta og eina skiptið sem ég segi förum á
Pravda) þar sem the handsome public voru að spila og án spaugs var
það hápunktur kvöldsins í kvöld. Ekki skemmdi fyrir að þeir gáfu
smáskífu sína eftir tónleikana bæði á cd og sjö tommu sem ég var
ekki lengi að þiggja, einnig keypti ég safndiskinn airwaves 06' á
Nasa og er ég því nokkuð sáttur drengur eftir kvöldið!!!
»
16.10.2006 23:34:19 / rottugaur
Það var verið að fjárfesta í fataskáp fyrir heimilið. Við fórum nú
í rúmfatalagerinn því við þorðum ekki í geðveikina í ikea og fundum
þennan líka fína fataskáp. Og eins og þið vitið er það yfirleitt
svona nokkuð einfallt að setja þessa blessuðu skápa upp eða hvað
sem það er sem keypt er á þessum stöðum. Eina sem þarf er smá
þolinmæði og vinna bara skipulega eftir leiðbeiningum. Ég í
rólegheitunum byrjaði taldi skrúfur og aðra lausa muni og allt
passaði. Er ég var síðan að fara að setja lamir fyrir hurðirnar á
skápinn tek ég eftir því að það vantar eina skrúfu eina fjandans
skrúfu. Þessar skrúfur voru fastar í lömunum og taldi ég þær því
ekki gerði bara ráð fyrir að þær væru til staðar. Svona hlutir gera
mig alveg rosalega pirraðann. Í staðinn fyrir að geta klárað
helvítið núna þarf ég að gera mér aðra leið í þessa fjandans búð
til að sækja eina helvítis skrúfu sem er kannski tveir sentimetrar
á stærð. Og hverjum langar að veðja að þeir eigi ekki þessa skrúfu
til og ég þurfi að fara á annan stað til að redda henni?
OOrrrg!!!
»
16.10.2006 02:28:19 / rottugaur
Hugmyndir sem maður fær eftir djamm á leið heim á bara ekki að
framkvæma! Maður á að fá sér litla bók, skrifa hana niður og sjá
hvort hún er jafn viturleg þegar maður vaknar daginn eftir. Þetta
er svona í anda Hemingway.
»
14.10.2006 01:51:53 / rottugaur
http://dild.net/2006/10/08/six-beers-in-10-seconds/
Er ekki verið að grínast í mér? Ég bara spyr! Síðan er ég óánægður
með að ekki einn sem les þessa síðu sé á leið á airwaves. Ég bara
trúi því ekki. Í guðanna bænum bænheyrið mig og segið mér að ykkur
þyki vænt um tónlist!!!
»
10.10.2006 01:53:06 / rottugaur
Maður er kannski ekki með allar sellurnar í gangi á öllum stundum.
En ég er góður í minesweeper. Þó ég sé kannski ekki á leiðinni að
kaupa mér flassy tölvumús og flotta músarmottu til að mæta með á
mót. En ég gúglaði minesweeper mér svona til skemmtunar og
yndisauka og komst að því að það er til geðsjúkt fólk í veröldinni.
Og jú það eru haldin mót í þessum leik. En nóg af minesweeper.
Airwaves hverjir ætla? Ég! Einhverjir aðrir? Ég er búinn að vera að
dunda mér við að hlusta á tónlist þeirra erlendu hljómsveita sem
mæta og er orðinn nokkuð hrifinn af nokkrum þeirra. Náttúrulega The
Go! Team og Wolf Parade sem eru að spila á sama tíma mér til
mikillar mæðu. Mates Of State og We Are Scientists hljóma vel líka.
The Klaxons eru að koma sterkir inn sem og Fields. Hún er algjört
æði þessi blessaða hátíð og er ég búinn að fá mér frí í vinnu til
að geta verið öllum stundum niðri í bæ og fengið þetta allt saman
beint í æð. En eru einhverjir að fara af þeim sem lesa mig?
»
28.09.2006 20:00:24 / rottugaur
Nú ætla ég að tala um þann ótrúlega tímaþjóf sem minesweeper er og
langar að fá það í ljós hvort maður sé samkeppnishæfur í þessum
leik og ætti kannski að fara að leita af keppnum og svoleiðis til
að taka þátt í. Ég meina er ekki alltaf verið að halda hin og þessi
mót í hinum ýmsu tölvuleikjum og því ekki minesweeper. Þetta ætti
nú að vera mjög vel útbreiddur leikur þar sem hann fylgir windows
stýrikerfinu og finnst því allflestum pc tölvum. En allavega þá á
ég besta tíma í expert 148sek og í Intermediate 44sek en fílfið
hann bróðir minn óvart datt á metið í beginner sem pirrar mig
ekkert smá en það er 4sek sem er náttúrulega bara ekki hægt ég held
ég eigi bestan tíma þar eitthvað um 6sek. Nú langar mig aðeins að
forvitnast er ég bara ótrúlega skrítinn gaur að stunda minesweeper
og vera að keppast að betri tímum eða eru fleiri forfallnir þarna
úti. Ef það skyldi vera þannig að ég sé ekki sá eini hvernig er
ykkur hinum að ganga?
»
Síður: 1 2 3 ... 6
|