16.10.2006 23:34:19 / rottugaur
Pirrandi!!!
Það var verið að fjárfesta í fataskáp fyrir heimilið. Við fórum nú
í rúmfatalagerinn því við þorðum ekki í geðveikina í ikea og fundum
þennan líka fína fataskáp. Og eins og þið vitið er það yfirleitt
svona nokkuð einfallt að setja þessa blessuðu skápa upp eða hvað
sem það er sem keypt er á þessum stöðum. Eina sem þarf er smá
þolinmæði og vinna bara skipulega eftir leiðbeiningum. Ég í
rólegheitunum byrjaði taldi skrúfur og aðra lausa muni og allt
passaði. Er ég var síðan að fara að setja lamir fyrir hurðirnar á
skápinn tek ég eftir því að það vantar eina skrúfu eina fjandans
skrúfu. Þessar skrúfur voru fastar í lömunum og taldi ég þær því
ekki gerði bara ráð fyrir að þær væru til staðar. Svona hlutir gera
mig alveg rosalega pirraðann. Í staðinn fyrir að geta klárað
helvítið núna þarf ég að gera mér aðra leið í þessa fjandans búð
til að sækja eina helvítis skrúfu sem er kannski tveir sentimetrar
á stærð. Og hverjum langar að veðja að þeir eigi ekki þessa skrúfu
til og ég þurfi að fara á annan stað til að redda henni?
OOrrrg!!!